Skip to main content

Hraðsendingar

Icetransport er umboðsaðili FedEx og TNT á Íslandi.

Icetransport er umboðsaðili FedEx og TNT á Íslandi og býður upp á hraðsendingar á flutningsleiðum frá 220 löndum og svæðum. Hjá FedEx og TNT starfa yfir 500 þúsund manns og fyrirtækið flytur að meðaltali 15 Milljónir sendinga/hraðsendinga daglega og rekur 679 flugvélar og um 180 þúsund bifreiðar. Því er óhætt að segja að hraðsendingar með FedEx séu traustar bæði í lofti og á vegum.

Útflutningur með Icetransport

Icetransport aðstoðar viðskiptavini sína að koma FedEx og TNT hraðsendingum frá Íslandi, bæði hratt og örugglega. Með flutningsneti FedEx og TNT bjóðum við viðskiptavinum upp á afhendingu á sendingum á 24 tímum til Bandaríkjanna og Evrópu.

Við minnum á að hraðsendingar spara ekki aðeins tíma heldur geta þær einnig, í mörgum tilvikum, sparað fé og enn fremur bætt þjónustu við viðskiptavini.

Hafðu samband við þjónustufulltrúa Icetransport í síma 4 120 120 eða í tölvupósti fyrir frekari upplýsingar um hraðsendingar.

Hagnýtar upplýsingar um útflutning

Sæktu um viðskiptanúmer, óskaðu efitr að láta sækja sendingu til útflutnings og fleira

Hér er hægt að sækja um FedEx viðskiptanúmer sem hægt er að nota til að flytja sendingar til og frá Íslandi.

Bókaðu pick up – Icetransport sækir hraðsendingar ætlaðar til útflutnings.

Hér má sjá helstu vörur sem eru á bannlista FedEx og hvaða lönd er ekki hægt að senda til.

Vörureikningar (e. proforma invoices) þurfa að fylgja sendingum til útflutnings.

Hér má sjá stærðartakmarkanir FedEx hraðsendinga bæði í inn- og útflutning.