Hraðsendingar
Icetransport er umboðsaðili FedEx á Íslandi.
Icetransport er umboðsaðili FedEx á Íslandi og býður upp á hraðsendingar á flutningsleiðum frá 220 löndum og svæðum. Hjá FedEx starfa yfir 400 þúsund manns og fyrirtækið flytur að meðaltali 12 Milljónir sendinga/hraðsendinga daglega og rekur 650 flugvélar og yfir 150 þúsund bifreiðar. Því er óhætt að segja að hraðsendingar með FedEx séu traustar bæði í lofti og á vegum.
Millilandaflutningar með Icetransport
Icetransport aðstoðar viðskiptavini sína að koma FedEx hraðsendingum til og frá Íslandi, hvaðan sem er úr heiminum, bæði hratt og örugglega. Einnig býður Icetransport upp á millilandaflutninga (e. crosstrade) á hraðsendingum með FedEx án þess að sendingin hafi viðkomu á Íslandi.
Við minnum á að hraðsendingar spara ekki aðeins tíma heldur geta þær einnig, í mörgum tilvikum, sparað fé og enn fremur bætt þjónustu við viðskiptavini.
Hafðu samband við þjónustufulltrúa Icetransport í síma 4 120 120 eða í tölvupósti fyrir frekari upplýsingar um hraðsendingar.