Skip to main content

Jafnlaunastefna

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að jafnlaunakerfi Icetransport ehf standist lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skv. lögum nr. 150/2020. Jafnlaunakerfið nær yfir alla starfsmenn félagsins.

Tilgangur kerfisins er að tryggja starfsfólki Icetransport ehf sömu kjör fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Launaákvarðanir eru ákveðnar af launaráði og eru í samræmi við gildandi kjarasamninga.

Icetransport ehf skuldbindur sig til að;

  • innleiða jafnlaunavottun sem byggist á ÍST 85 staðlinum og framfylgja honum.
  • að kerfið feli í sér stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð.
  • fylgja lögum, reglum og kjarasamningum sem eru í gildi.
  • skapi umgerð til að setja fram og rýna jafnlaunamarkmið.
  • að kerfið sé uppsett svo að skjalfesting, innleiðing og viðhald sé framkvæmt.
  • kynna starfsfólki niðurstöður launagreiningar sem gerðar eru árlega.
  • stefnan er kynnt öllum starfsmönnum og einnig á vefsíðu Icetransport ehf.

Hafnarfirði 20. október 2024

 

Starfsmannastefna 

Markmið IceTransport er að fyrirtækið hafi á að skipa hæfu, heiðarlegu og áhugasömu starfsfólki sem tekur virkan þátt í framþróun fyrirtækisins.

IceTransport veiti starfsfólki sínu sem best skilyrði til þess að sinna þeim verkefnum sem störf þeirra krefjast
og leggur fyrirtækið ríka áherslu á góðan starfsanda á vinnustað.

Stjórnendur bera ábyrgð á því að árleg starfsmannasamtöl fari fram en tilgangur samtalana er að stuðla
að því að starfsmenn geti þróast í starfi, nái árangri og velferð starfsmanna er höfð að leiðarljósi.

IceTransport styður heilsusamlegt líferni og sveigjanleika sem stuðlar að markmiði fyrirtækisins
um vellíðan starfsmanna og að samræma vinnu og fjölskyldulíf.

Á þennan hátt skapast skemmtilegur, hvetjandi og fjölskylduvænn vinnustaður sem myndar sterka liðsheild og
er fyrirtækinu til hagsbóta þar sem gott og ánægt starfsfólk er grunnurinn að vel reknu fyrirtæki.