Skip to main content

Hraðsendingar

Icetransport er umboðsaðili FedEx og TNT á Íslandi.

Icetransport er umboðsaðili FedEx og TNT á Íslandi og býður upp á hraðsendingar á flutningsleiðum frá 220 löndum og svæðum. Hjá FedEx og TNT starfa yfir 500 þúsund manns og fyrirtækið flytur að meðaltali 15 Milljónir sendinga/hraðsendinga daglega og rekur 679 flugvélar og um 180 þúsund bifreiðar. Því er óhætt að segja að hraðsendingar með FedEx séu traustar bæði í lofti og á vegum.

Millilandaflutningar með Icetransport

Icetransport aðstoðar viðskiptavini sína að koma FedEx hraðsendingum til og frá Íslandi, hvaðan sem er úr heiminum, bæði hratt og örugglega. Einnig býður Icetransport upp á millilandaflutninga (e. crosstrade) á hraðsendingum með FedEx án þess að sendingin hafi viðkomu á Íslandi.

Við minnum á að hraðsendingar spara ekki aðeins tíma heldur geta þær einnig, í mörgum tilvikum, sparað fé og enn fremur bætt þjónustu við viðskiptavini.

Hafðu samband við þjónustufulltrúa Icetransport í síma 4 120 120 eða í tölvupósti fyrir frekari upplýsingar um hraðsendingar.

Hagnýtar upplýsingar innflutnings

Sæktu um viðskiptanúmer, sendu okkur vörureikning, skoðaðu verðskrá hraðsendinga og fleira.

Hér er hægt að sækja um FedEx viðskiptanúmer sem hægt er að nota til að flytja sendingar til og frá Íslandi.

Fylltu út formið og sendu til okkar til að óska eftir innflutningi á hraðsendingu.

Flýttu fyrir tollafgreiðslu og sendu okkur vörureikning áður en sending kemur til landsins.

Áttu von á sendingu? Fáðu tilkynningu í tölvupósti þegar vara kemur til Íslands.

Hér má sjá þau þjónustugjöld sem geta lagst á hraðsendingar.

Hér má sjá stærðartakmarkanir FedEx hraðsendinga bæði í inn- og útflutning.