Flugfrakt
Flugfrakt er einföld og þægileg leið fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að senda varning milli landa, sér í lagi þegar afgreiða þarf vöru á tilteknum tíma.
Margvíslegt hagræði getur hlotist af því að nýta sér flugfrakt, til dæmis:
- Tímasparnaður flugfraktar er greinilegur.
- Varningur kemst fyrr í sölu eða notkun með flugfrakt.
- Afgreiðslutími söluvarnings styttist og sölulíkur aukast með flugfrakt.
- Ánægðir viðskiptavinir kjósa flugfrakt!
Icetransport hefur í samstarfi við trausta aðila byggt upp öflugt flutninga- og þjónustunet með flugfrakt um allan heim. Flugfrakt tryggir meðal annars að viðskiptavinir fyrirtækisins geta reitt sig á að vörur þeirra fari frá sendanda og komi til viðtakanda á réttum tíma.
Almenn flugfrakt er alla jafnan þrjá til fimm virka daga til/frá helstu viðskiptalöndum Íslands.
Hafðu samband við þjónustufulltrúa í síma 4 120 120 eða í tölvupósti fyrir frekari upplýsingar.